Heima hjá Grétu Hansen borða Randalín og Mundi yfir sig af gömlu nammi og komast að því að framundan eru dularfull verkefni sem þeim ber að leysa með hjálp enn dularfyllri verkfæra.
Randalín og Mundi fara til Grétu Hansen í leit að upplýsingum um myrkraverk Ketils og neyðast til að setja á svið kaffiboð til þess að fá fleiri vísbendingar.
Krakkarnir baka fyrir hina árlegu piparkökuhúsakeppni, en verður fljótt ljóst að þeim er ýmislegt annað til lista lagt en að baka piparkökuhús, eins og til dæmis það að gera símaat.
Öll spjót beinast að Randalín og Munda sem nauðverjast í erfiðri stöðu og missa fyrir vikið sína einu vísbendingu um hinn dularfulla og leiðinlega Ketil.
Krakkarnir geta ekki sofið fyrir endalausum heilabrotum um jólagjafir og grunsamlega hegðun fullorðna fólksins og hætta sér í spennuþrungin rannsóknaleiðangur að næturlagi.
Gréta Hansen gefur mikilvæg ráð en Ketill slær persónulegt met í leiðindum, Randalín og Mundi velta því fyrir sér hvort að grunsamlega hegðun nágrannanna eigi sér eðlilegar skýringar.
Þó rómantíkin svífi yfir vötnum á Árbæjarsafni hjá fullorðna fólkinu, magnast ótti krakkanna um að Fatíma og Nína séu í vanda og þau reyna sitt besta til þess að hjálpa.
Jólaball skólans tekur óvæntan snúning þegar Aníta og Stefán vilja gera hreint fyrir sínum dyrum og skólafélagarnir átta sig á hvers þau geta verið megnug ef þau leggjast á eitt.